Miðvikudagur, 16. Júní 2010 17:53

Alþjóðlegi „Hjólað“ í vinnuna dagurinn

Skrifað af Bergur Kristinsson

Alþjóðlegi „Hjólað“ í vinnuna dagurinn (Internatunal Ride to work day)

„Hjólað“ í vinnuna dagurinn er alþjóðlegur viðburður sem haldinn er um allan heim þriðja mánudag í  júní ár hvert. Markmið dagsins er að minna á að mótorhjól eru hagkvæmari og umhverfisvænni kostur sem ferðamáti til og frá vinnu. Mótorhjól og vespur eyða mun minna eldsneyti, slíta gatnakerfinu umtalsvert minna og taka minna pláss í umferð og á bílastæðum svo eitthvað sé nefnt. Á mánudaginn kemur 21. Júní mun mótorhjólafólk um allan heim nota mótorhjól eða vespur sem farartæki til og frá vinnu, Sniglar hvetja allt mótorhjólafólk á Íslandi til að taka þátt og nota hjólið til og frá vinnu þennan dag.  Á heimleiðinni á milli 17:00 og 18:00 er tilvalið fyrir þá sem eru í Reykjavík að koma við á Ingólfstorgi og sýna framtakinu lið og vera með á hópmynd.

 - að „hjóla“ í vinnuna er skemmtilegt.
 - að „hjóla“ í vinnuna skapar minni umferð og einfaldar bílastæða mál.
 - að „hjóla“ í vinnuna brennir minna eldsneyti en fólksbíll.
 - að „hjóla“ í vinnuna stuðlar að því að athygli mín og orka er í hámarki.
 - að „hjóla“ í vinnuna mengar minna en að fara á bílnum.
 - að „hjóla“ í vinnuna hefur minni áhrif á vegakerfið.
 - að „hjóla“ í vinnuna skilar mér í og úr vinnu á ánægjulegan hátt.
 - að „hjóla“ í vinnuna sýnir að mótorhjól er betri valkostur sem farartæki í borgarumferð.


www.sniglar.is
  –  www.ridtowork.org

Síðast breytt: Fimmtudagur, 17. Júní 2010 08:39
Bergur Kristinsson

Bergur Kristinsson

Póstfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Afsláttarkjör

Footer_Sniglakjor

Félagskírteini Snigla veitir þér ýmis sérkjör á vöru og þjónustu

Sniglasafnið

Footer_Sniglasafnid

Átt þú áhugavert efni á Sniglasafnið?

Upplýsingatorg

Footer_Upplysingatorg

Langar þig að taka bifhjóla próf? Vantar þig vöru eða þjónustu?

Sniglabúðin

Footer_Sniglabudin

Í sniglabúðinni færðu "merkjavöru" á góðu verði