Persónuverndarstefna
Söfnun og meðhöndlun persónuupplýsinga
Sniglar safna upplýsingum um viðskiptavini sína. Það er þó eingöngu gert í þeim tilgangi að veita viðskiptavinum aðgang að vörum og þjónustu skv. viðskiptasamningum og til að miðla upplýsingum í markaðslegum tilgangi. Markmiðið með upplýsingasöfnuninni er fyrst og fremst að bæta þjónustuna við viðskiptavini og tryggja sem besta upplifun þeirra í viðskiptum við Snigla.
Áframsending persónugreinanlegra gagna til þriðja aðila
Sniglar deila ekki persónugreinanlegum upplýsingum með þriðja aðila og nýta aldrei persónuupplýsingar viðskiptavina í öðrum tilgangi en þeim sem þær voru safnaðar fyrir. Gögn eru geymd eins lengi og nauðsynlegt er miðað við tilgang upplýsingasöfnunarinnar.
Vafrakökur
Vafrakökur (e. cookies) eru litlar textaskrár sem margar vefsíður nota, þar á meðal sniglar.is. Vafrakökur eru búnar til þegar vefsíður eru heimsóttar. Vafrakökur innihalda ekki persónugreinanlegar upplýsingar og engin leið er fyrir aðrar vefsíður að lesa í upplýsingar sem vafrakökurnar safna. Ein notkun vafrakaka er sú að notandi vafra þarf ekki að slá inn notendanafn þegar vafrað er á netinu á síðum sem áður hafa verið heimsóttar af notanda.
Flestir vafrar eru stilltir þannig að þeir taka sjálfvirkt við kökum. Auðvelt er að afþakka þennan eiginleika í vafra en mögulega getur virkni síðunnar breyst ef vafrakökur eru afþakkaðar.
Hægt er að breyta öryggisstillingum á flestum netvöfrum þannig að þeir taki ekki á móti kökum. Einnig er hægt að eyða kökum með einföldum hætti.
Vefmælingar
Sniglar nota Google Analytics til vefmælinga á vefjnum. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir o.fl. Engum persónugreinanlegum upplýsingum er safnað um hverja komu.
Nánar um Google Analytics.
Réttur viðskiptavinar/notanda
Viðskiptavinur/notandi hefur rétt á að afturkalla samþykki fyrir notkun á persónuupplýsingum. Viðskiptavinur/notandi getur hvenær sem er farið fram á breytingu á skráningu, að Sniglar hætti að nota eða að Sniglar eyði persónugreinanlegum gögnum um sig.
Viðskiptavinur/notandi getur í þessu samhengi fengið að skoða persónuupplýsingarnar sem Sniglar hafa safnað. Til þess að breyta eða eyða gögnum, eða breyta notkun persónuupplýsinga, þarf viðskiptavinur/notandi að geta gert grein fyrir sér með viðurkenndum hætti.
Breytingar á gagnasöfnun
Sniglar áskilja sér rétt til að breyta ofangreindum upplýsingum um gagnavernd hvenær sem er í samræmi við ákvæði gagnaverndarlaga. Við breytingu þarf viðskiptavinur/notandi að samþykkja skilmálana aftur.