“Ákall um úrbætur, of lítið fjármagn til viðhalds gatnakerfis hefur kostað mannlíf”
Bifhjólafólk hefur um langt bil kallað eftir viðbrögðum stjórnvalda og Vegagerðar um úrbætur á vegum
landsins, en mörg slys hafa orðið vegna vankanta í þeim efnum.
Miðvikudaginn 23.október verður opinn fundur Snigla og Vegagerðarinnar kl 19.00, að Suðurhrauni 2 í
Garðabæ
Við viljum fá svör við því hvernig hægt er að nálgast fjármagn sem þarf til að viðhalda vegakerfinu okkar,
en stjórnvöld hafa svelt þennan málaflokk svo árum skiptir sem kemur niður á almenningi.
Of mjóir vegir, lélegar klæðingar, einbreiðar brýr, lítil ending á malbiki, endalausar holur, sig í vegum,
hjólför, og mikill umferðarþungi, allt þetta veldur slysum.
Sniglar hvetja bifhjólafólk til að fjölmenna á fundinn en dagskráin verður sem hér segir;
Fundarstjóri kvöldsins verður G. Pétur Matthíasson
Dagskrá:
1. Nýframkvæmdir og fjárfestingar næstu árin – Arndís Ósk Arnalds, framkvæmdastjóri mannvirkjasviðs
2. Viðhald á vegum – Oddur Sigurðsson Hjaltalín, forstöðumaður stoðdeildar
3. Upplýsingamiðlun til vegfarenda – Bergþóra Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri þjónustudeildar
4. Opnar umræður og spurningar
Vegagerðin mun sjá um að bjóða upp á hressingu á staðnum.
Þar sem kostningar eru framundan hvetjum við alla tilvonandi þingmenn til að mæta og taka þátt í
þessum umræðum með okkur, því þetta er jú málefni sem snertir okkur öll, til framtíðar
...