Sniglafréttir

Aðalfundur 2026

Aðalfundur Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla, var haldinn laugardaginn 7. mars 2026 og fór hann vel fram með ágætri þátttöku félagsmanna. Á fundinum var farið yfir starfsemi félagsins á liðnu starfsári og helstu verkefni framundan. Samkvæmt dagskrá fundarins var skýrsla stjórnar kynnt og farið yfir helstu áherslur og verkefni ársins. Einnig var ársreikningur félagsins lagður fram og yfirfarinn, ásamt rekstraráætlun komandi árs. Þá var flutt áhugaverð kynning um starfsemi FEMA, sem vakti góðar umræður meðal félagsfólks. Að lokum voru tekin fyrir önnur mál. Allar tillögur og mál sem lögð voru fyrir fundinn hlutu samþykki. Á fundinum urðu breytingar á stjórn félagsins. Jokka G. Birnudóttir, varaformaður, Sigurjón Hansson, ritari, Guðlaugur Jónsson, meðstjórnandi, og Ragna Berg Gunnarsdóttir, í varastjórn, létu af störfum eftir mikilvægt framlag til félagsins á undanförnum árum. Félagið vill færa þeim innilegar þakkir fyrir þeirra störf, tíma og eldmóð í þágu félagsins og félagsfólks. Til setu í stjórn voru kjörin Pétur Gunnarsson í aðalstjórn, Logi Már Einarsson í aðalstjórn, Gunnar Gunnarsson í varastjórn og Anna Guðný Egilsdóttir í varastjórn. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins framundan. Framundan eru ýmis verkefni sem stjórn félagsins mun vinna að á næstu mánuðum. Þar á meðan stendur til að hefja vinnu við að finna nýtt húsnæði fyrir Snigilana, sem er mikilvægt verkefni fyrir starfsemi félagsins til framtíðar. Auk þess er framundan hefðbundið félagsstarf, þar á meðal undirbúningur vorfagnaðar, 1. maí keyrslan, opin hús, grill og fleira. Lóan er komin og því styttist í að við fáum að viðra fákana okkar. Farið varlega og komið heil heim. Stjórn Snigla

Aðalfundur 2026 Lesa meira »

Við leitum að öflugu fólki í stjórn

Við leitum að öflugu fólki í stjórn Nú er brýn þörf á að styrkja stjórn félagsins og við leitum að áhugasömum einstaklingum til að taka þátt í starfinu. Laus eru: 2 sæti í aðalstjórn (kjörtímabil 2 ár) 2 sæti í varastjórn (kjörtímabil 1 ár) Stjórnarseta er gefandi og skemmtilegt verkefni þar sem þú færð tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif. Við vinnum saman að því að efla starf félagsins, bæta öryggi bifhjólafólks og standa vörð um réttindi þess. Í stjórn starfar samhentur hópur með góðan starfsanda og metnað fyrir málefninu. Starfið felur í sér þátttöku í fjölbreyttum verkefnum og viðburðum – og ekki síður góðan félagsskap. Margar hendur vinna létt verk og framlag hvers og eins skiptir máli. Ef þú hefur áhuga á að leggja þitt af mörkum og taka þátt í öflugu starfi, hvetjum við þig til að gefa kost á þér. Framboð sendast á stjorn@sniglar.is Við hlökkum til að heyra frá þér. Tilkynning um breytingu í stjórn Vegna persónulegra aðstæðna hefur Guðlaugur Jónsson ákveðið að stíga til hliðar frá aðalstjórn félagsins, en hann átti eitt ár eftir af kjörtímabili sínu. Steinmar Gunnarsson tekur sæti í aðalstjórn úr varastjórn í hans stað. Fyrir hönd stjórnar.

Við leitum að öflugu fólki í stjórn Lesa meira »

Aðalfundur

Aðalfundur Snigla 7.mars 2026 Fundurinn verður haldinn í húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands að Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi Húsið opnar kl 11:30 en fundur hefst stundvíslega kl 12:00. ( biðjum ykkur að leggja bak við húsið ) Það eru allir velkomnir á fundinn en einungis greiddir Sniglar hafa kosningarrétt. Dagskrá : 1. Setning fundar 2. Kosinn fundarstjóri 3. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu 4. Gjaldkeri leggur fram ársreikning 5. Umræða um ársreikning og skýrslu stjórnar 6. Gjaldkeri leggur fram rekstraráætlun komandi árs 7. Ákvörðun félagasgjalda fyrir næsta ár 8. Lagabreytingar ef einhverjar eru – Tillaga að breytingu á grein 10: Tillögur til lagabreytinga skal senda stjórn skriflega eigi síðar en 15 dögum fyrir aðalfund.  Allar þær tillögur að lagabreytingum sem berast innan tilskilinna tímamarka skal stjórn kynna orðrétt með birtingu aðalfundarboðs á heimasíðu Snigla 9. Kosning í stjórn 10. Kosning tveggja skoðunarmanna 11. Önnur mál – húnsæðismál 12. Fundarslit Stjórn Snigla er samansett af fimm manns: Það er formaður og fjórir stjórnarmenn. Formaður er kosinn til tveggja ára í senn Seta stjórnarmanna er tvö ár í og skiptist þannig að tveir fara út í einu. Þrír varamenn í stjórn skulu kosnir til eins árs í senn. Þorgerður Hoddó Guðmundsdóttir formaður , situr áfram í stjórn í eitt ár í viðbót Jokka G Birnudóttir varaformaður , er að ljúka sinni setu en gefur ekki kost á sér áfram Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir gjaldkeri , situr áfram í stjórn í eitt ár í viðbót Sigurjón Hansson ritari , er að ljúka sinni setu en gefur ekki kost á sér áfram Guðlaugur meðstjórnandi , situr áfram í stjórn í eitt ár í viðbót Að sitja í stjórn Snigla er skemmtilegt og krefjandi starf, við höfum unnið náið með samgöngustofu, Vegagerðinni, borgaryfirvöldum og lögreglu í allskonar verkefnum ásamt því að vinna í allskyns herferðum Stjórnin vinnur með hagsmuni mótorhjólafólks í fyrirrúmi og erum í góðri samvinnu við FEMA Svo eru skemmtilegu verkefnin eins og skipulagning 1.maí keyrslan, vorfundurinn ljúfi, fjölskyldugrill og ekki má gleyma öllum opnu húsunum þar sem við fáum að hitta allt skemmtilega fólkið. Þar hafa ýmsir stigið á stokk, kynnt sig og sína, höfum fengið allskyns fræðsluefni, auk þess að fá beint samtal við hinar og þessar stofnanir Við gerum kröfu um að fólk sem gefur sig fram til starfa fyrir Snigla, hafi tíma, áhuga og getu til að vinna að hagsmunum bifhjólamanna. Þetta allt gerist ekki að sjálfu sér! Við óskum eftir fersku fólki í stjórn með okkur og nú má unga fólkið endilega leggja okkur lið 😎 Samfélagsmiðlar eru orðnir jafnsjálfssagðir og tíkallasímarnir voru hér áður og okkur vantar td einhvern hugmyndaríka/nn aðila í það Endilega heyrðu í okkur, komdu í framboð, sumarið er handan við hornið og nóg að gera! Samtakamáttur mótorhjólafólks á Íslandi fer núna vaxandi og við þökkum stuðninginn við starfið á liðnu ári. Það er með greiðandi félögum okkar sem hægt er að halda úti öflugri starfssemi og hagsmunagæslu. Við viljum því nota tækifærið og minna alla á að greiða greiðsluseðlana í heimabankanum, fyrir aðalfundinn, og þökkum fyrir stuðninginn um leið og við bíðum full eftirvæntingar eftir hjólasumrinu 2026. Kær kveðja stjórn Bifhjólasamataka, lýðveldisins Sniglar.

Aðalfundur Lesa meira »

Okkur vantar þig!

Halló bifhjólafólk! Nú líður að aðalfundi Snigla og okkur vantar þig með okkur. Þar sem tveir fara úr stjórn þarf fólk í fólks stað og nú er þitt tækifæri til að láta til þín taka. Öryggi bifhjólafólks er okkur öllum hugleikið og alltaf hægt að bæta um betur. Skipulagning á viðburðum, utanumhald, útsjónarsemi, skemmtilegheit og uppfinningarsemi er kostur, áhugasemi sem og frumkvæði. Það eru allskonar verkefni sem lýtur að stjórninni og getum við lofað því að þau eru flest ef ekki öll skemmtileg. Endilega skelltu þér í framboð, og komdu með Framboð sendist á netfangið stjorn@sniglar.is ásamt stuttri kynningu á ykkur.

Okkur vantar þig! Lesa meira »

Tilkynning til félagsfólks

Kröfur vegna félagsgjalda 2026 hafa nú verið sendar í heimabanka félagsfólks. Við hvetjum ykkur til að líta í heimabankann ykkar. Ef einhverjar spurningar vakna, ef þið teljið ykkur hafa fengið kröfu fyrir mistök eða viljið ganga hóp félagsfólks, er ykkur velkomið að hafa samband við gjaldkerisnigla@gmail.com Skemmtileg dagskrá að venju framundan hjá okkur Sniglum, meðal annars opin hús, Vorfagnaður, 1.maí , fjölskyldugrill og fl. Sjáumst og komum heil heim. Kv Stjórn Snigla.

Tilkynning til félagsfólks Lesa meira »

Aðgerðarhópur efnir til samstöðufundar

Bifhjólafólk vill fá svör vegna fyrirhugaðar hækkana á vörugjöldum á innflutt mótorhjól og svo vegna kílómetragjalds Því hefur aðgerðarhópur úr ýmsum áttum tekið sig saman og boða til samstöðufundar í húsnæði Fornbílaklúbbsins 13.nóvember næstkomandi, kl 19.30 að Ögurhvarfi 2. Mætum öll því þetta snertir allt bifhjólafólk

Aðgerðarhópur efnir til samstöðufundar Lesa meira »

Samstöðufundur

Samstöðufundur – fundargerð Sniglar héldu samstöðufund vegna umræðu stjórnvalda um komandi kílómetragjald, og mættu rúmlega 100 manns á fundinn. Mikill hiti var í fólki enda upplifir bifhjólafólk það sé bara ekki hlustað á það Hér fyrir neðan eru helstu punktar frá fundinum, en þar sem margar hugmyndir og spurningar komu fram reyndi fundarritari að ná þeim öllum í stikkorðum ▪ Kostnaðurinn við að halda úti kerfinu, heimasíða, eftirfylgni,staðfesting á km, innheimta▪ Skylduskoðun árlega hér, uþb 100-120 millj á ári í innh MótmæliÞingmenn eru hræddastir við samstöðu, þegar heill hópur tekur sig saman er hlustað Í enda fundar var ákveðið að stofna vinnuhóp sem hittist reglulega og ræðir hvaða leiðir er hægt að fara til að ná eyrum stjórnvalda og hvað er best til úrlausna Vinnuhópur:Jón Þór, Milan, Birgir, Sverrir, GummiZ, Karl, Jón Berg, Maríanna, Jóna Guðný, Njáll,HoddóKristrún heldur utanum Betur má ef duga skal, við hvetjum alla til að leggja málefninu lið hvort sem það er opinberlega eða ræða við vinnuhópinn, koma á Snigla fundi, allt hjálpar til, en við krefjumst þess að stjórnvöld hlusti og taki tillit til bifhjólafólks

Samstöðufundur Lesa meira »

Aðalfundur Snigla – Fundargerð

Fundargerð aðalfundar Snigla 08/03 2025 í húsi Fornbílaklúbbsins, Ögurhvarfi 2 Fundarstjóri; Skúli GautasonRitari; Kristrún Tryggvadóttir Hefðbundin aðalfundarstörf og umræður í lokin Varamenn voru kosnir til eins árs, en það eru Steinmar Gunnarsson, Njáll Gunnlaugsson, og Ragna Berg. Eins voru kynnt rafræn félagsskírteini, en þau munu komast í gagnið á komandi dögum.  Með þeim er svo hægt að fá afslætti á ýmsum stöðum sem kynnt verða á heimasíðu Snigla, sniglar.isSniglar gáfu viðurkenningar fyrir óeigingjörn störf í þágu Snigla, en þær hlutu Steinmar Gunnarsson, Njáll Gunnlaugsson, Hjörtur (Líklegur) Jónsson og Ólafur Hjartarsson, þökkum við þeim kærlega fyrir sína vinnu Fundi slitið

Aðalfundur Snigla – Fundargerð Lesa meira »

Aðför að réttindum bifhjólafólks

Sniglar hafa sent eftirfarandi tilkynningu á Samgöngunefnd, samgönguráðherra og fjármálaráðherra; Bifhjólasamtök Lýðveldisins mótmæla því kröftuglega þeirri aðför sem gerð er að bifhjólafólki vegna tilvonandi kílómetragjalds. Þar er umferðarhópi sem í tilfelli þungra bifhjóla er að meðaltali tíu sinnum léttari en bílar, ætlað að borga margfalda upphæð samanborið við aðra umferðarhópa. Dæmið fyrir léttari bifhjól er enn verra en þar er munurinn meiri en þrítugfaldur! Til að bæta gráu ofan á svart eiga erlend bifhjól að greiða fjórum sinnum lægra gjald en bílar við komu til landsins, sem að brýtur gegn jafnræðisreglu. Það er því krafa okkar að gætt sé jafnræðis og íslensk bifhjól greiði til samræmis við erlend. Tillaga BSL er því að þung bifhjól greiði 1,7 kr á km og létt bifhjól 0,6 kr. Þar með er ekki verið að fara fram á tíu sinnum lægra gjald, heldur aðeins fjórum sinnum minna, líkt og stjórnvöld hafa þegar gert að tillögu sinni varðandi erlend bifhjól við heimsókn til landsins. Bifhjólasamtök lýðveldisins, Sniglar eru tilbúin að fylgja þessu máli eftir af festu.

Aðför að réttindum bifhjólafólks Lesa meira »

Hilmar Lúthersson, Snigill #1 er látinn

Hilmar Lúthersson lést að morgni fimmtudagsins 20. febrúar, 86 ára að aldri. Hilmar lést eftir stutta sjúkdómslegu en hann greindist með krabbamein í lungum fyrir stuttu. Hilmar er einn af stofnfélögum Bifhjólasamtaka Lýðveldisins en var auk þess félagsmaður í mörgum öðrum mótorhjólaklúbbum eins og til dæmis Göflurum, Gamlingjum, Þverhausum og Drullusokkum. Hilmar fæddist 26. ágúst 1938 og hefur því séð tímana tvenna. Fyrstu skellinöðruna sína keypti hann aðeins tólf ára gamall árið 1950 og fyrsta stóra mótorhjólið eignaðist hann vorið 1956 en það var Ariel 500. Hilmar var mikill áhugamaður um gömul mótorhjól og gerði þau upp á færibandi allt fram undir það síðasta. Eftir hann liggja mörg listaverkin og skipta gripirnir nálægt hundraði enda var hann afkastamikill og undrafljótur að koma þeim aftur í upprunalegt horf. Hilmar gerði þau ekki einungis upp, heldur notaði þau líka og var duglegur að hjóla þeim þar til á síðasta ári. Hilmar varð líka Íslandsmeistari í kvartmílu tvö ár í röð, 1985-6. Félagar hans í Bifhjólasamtökum Lýðveldisins senda ættingjum hans og vinum hugheilar samúðarkveðjur, en útför Hilmars mun fara fram föstudaginn 7. mars kl 13:00. Nánar verður tilkynnt um tilhögun hennar þegar nær dregur.

Hilmar Lúthersson, Snigill #1 er látinn Lesa meira »

Shopping Cart
Scroll to Top