Nú er biðin nánast á enda – 1. maí er handan við hornið og spennan farin að magnast fyrir eina skemmtilegustu hefð ársins.
Við minnum á að lagt verður af stað stundvíslega kl. 12:00 frá Grandagarði. Svo er mikilvægt að mæta tímanlega og vera klár þegar lagt er í hann. Keyrslan endar svo á bílaplaninu við Mjódd þar sem við komum saman og njótum dagsins.
Á endastöðinni verða 2guys og vöffluvagninn, auk þess sem klósettaðstaða verður á svæðinu.
Á Granda verða Hollvinir á staðnum með límmiðasölu til styrktar Grensás – allir eru hvattir til að sýna stuðning og leggja sitt af mörkum með frjálsum framlögum.
UMFERÐASTJÓRN – ÞAÐ TÓKST!
Það er okkur sönn ánægja að segja frá því að markmiðið náðist – við erum komin með þann mannskap sem þurfti í umferðastjórn.
Við viljum senda innilegar og hjartans þakkir til allra klúbba og einstaklinga sem buðu sig fram. Framlag ykkar skiptir sköpum og gerir það að verkum að hægt er að halda þessa frábæru hefð áfram á öruggan og skipulagðan hátt.
Án ykkar væri þetta einfaldlega ekki hægt.
Þúsund, þúsund þakkir – við kunnum virkilega að meta þetta!
Við hlökkum til að sjá ykkur öll 1. maí – njótum dagsins saman og gerum þetta að enn einni frábærri keyrslunni.



