Fundargerð aðalfundar Snigla 08/03 2025 í húsi Fornbílaklúbbsins, Ögurhvarfi 2
Fundarstjóri; Skúli Gautason
Ritari; Kristrún Tryggvadóttir
Hefðbundin aðalfundarstörf og umræður í lokin
- Formaður, Þorgerður F Guðmundsdóttir setti fundinn
- Skúli Gautason kosinn fundarstjóri með samþykki allra á fundinum
- Þorgerður F Guðmundsdóttir fór með skýrslu fráfarandi stjórnar er var svo samþykkt einróma
- Jokka G Birnudóttir lagði fram ársskýrslu gjaldkera, en gjaldkeri (Hrafnhildur Steindórsdóttir )gat ekki mætt sökum veikinda
- Ársskýrsla rædd sem og skýrsla stjórnar, og voru þær samþykktar af fundargestum
- Jokka G Birnudóttir lagði fram rekstraráætlun komandi árs í fjarveru gjaldkera
- Lagt var fram að félagsgjald yrði óbreytt á komandi ári, eða 7.500kr, var það samþykkt einróma
- Lagðar voru fram lagabreytingar þess efnis að félagsmaður þurfi að hafa greitt árgjald í amk eitt ár, áður en viðkomandi gæti boðið sig fram í stjórn, þótti lagabreyting ekki nægilega vel undirbúin og var óskað eftir að hún yrði lögð aftur fram að ári, og þá betur undirbúin, var það samþykkt
- Þorgerður bauð sig fram að nýju sem formaður og þar sem ekkert mótframboð kom, var hún sjálfkjörin áfram
- Bæði Þorgerður og Guðrún höfðu lokið stórnarsetu sinni en gáfu kost á sér áfram, Hrafnhildur Steindórsdóttir aftur á móti gaf ekki kost á sér áfram og bauð Guðlaugur Jónsson frá Tálknafirði sig fram og var það eina framboðið sem kom. Var hann því sjálfkjörinn í stjórn og samþykkt einróma
- Tveir skoðunarmenn gáfu kost á sér þeir Gunnlaugur og Sigurjón og var það samþykkt
- Önnur mál; Kristrún Tryggvadóttir kynnti FEMA en hún situr þar í stjórn og fer á fundi fyrir hönd Snigla, spunnust góðar umræður um það málefni, en kílómetragjald er mörgum hugleikið og lék forvitni á hvernig þetta fer fram í öðrum löndum.
Varamenn voru kosnir til eins árs, en það eru Steinmar Gunnarsson, Njáll Gunnlaugsson, og Ragna Berg.
Eins voru kynnt rafræn félagsskírteini, en þau munu komast í gagnið á komandi dögum. Með þeim er svo hægt að fá afslætti á ýmsum stöðum sem kynnt verða á heimasíðu Snigla, sniglar.is
Sniglar gáfu viðurkenningar fyrir óeigingjörn störf í þágu Snigla, en þær hlutu Steinmar Gunnarsson, Njáll Gunnlaugsson, Hjörtur (Líklegur) Jónsson og Ólafur Hjartarsson, þökkum við þeim kærlega fyrir sína vinnu
Fundi slitið