Halló bifhjólafólk! Nú líður að aðalfundi Snigla og okkur vantar þig með okkur.
Þar sem tveir fara úr stjórn þarf fólk í fólks stað og nú er þitt tækifæri til að láta til þín taka.
Öryggi bifhjólafólks er okkur öllum hugleikið og alltaf hægt að bæta um betur.
Skipulagning á viðburðum, utanumhald, útsjónarsemi, skemmtilegheit og uppfinningarsemi er kostur, áhugasemi sem og frumkvæði.
Það eru allskonar verkefni sem lýtur að stjórninni og getum við lofað því að þau eru flest ef ekki öll skemmtileg.
Endilega skelltu þér í framboð, og komdu með
Framboð sendist á netfangið stjorn@sniglar.is ásamt stuttri kynningu á ykkur.



