Aðalfundur Snigla 7.mars 2026
Fundurinn verður haldinn í húsnæði Fornbílaklúbbs Íslands að Ögurhvarfi 2, 203 Kópavogi Húsið opnar kl 11:30 en fundur hefst stundvíslega kl 12:00. ( biðjum ykkur að leggja bak við húsið )
Það eru allir velkomnir á fundinn en einungis greiddir Sniglar hafa kosningarrétt.
Dagskrá :
1. Setning fundar
2. Kosinn fundarstjóri
3. Fráfarandi stjórn gefur skýrslu
4. Gjaldkeri leggur fram ársreikning
5. Umræða um ársreikning og skýrslu stjórnar
6. Gjaldkeri leggur fram rekstraráætlun komandi árs
7. Ákvörðun félagasgjalda fyrir næsta ár
8. Lagabreytingar ef einhverjar eru – Tillaga að breytingu á grein 10:
Tillögur til lagabreytinga skal senda stjórn skriflega eigi síðar en 15 dögum fyrir aðalfund. Allar þær tillögur að lagabreytingum sem berast innan tilskilinna tímamarka skal stjórn kynna orðrétt með birtingu aðalfundarboðs á heimasíðu Snigla
9. Kosning í stjórn
10. Kosning tveggja skoðunarmanna
11. Önnur mál – húnsæðismál
12. Fundarslit
Stjórn Snigla er samansett af fimm manns:
Það er formaður og fjórir stjórnarmenn.
Formaður er kosinn til tveggja ára í senn
Seta stjórnarmanna er tvö ár í og skiptist þannig að tveir fara út í einu.
Þrír varamenn í stjórn skulu kosnir til eins árs í senn.
Þorgerður Hoddó Guðmundsdóttir formaður , situr áfram í stjórn í eitt ár í viðbót
Jokka G Birnudóttir varaformaður , er að ljúka sinni setu en gefur ekki kost á sér áfram
Guðrún Fjóla Guðmundsdóttir gjaldkeri , situr áfram í stjórn í eitt ár í viðbót
Sigurjón Hansson ritari , er að ljúka sinni setu en gefur ekki kost á sér áfram
Guðlaugur meðstjórnandi , situr áfram í stjórn í eitt ár í viðbót
Að sitja í stjórn Snigla er skemmtilegt og krefjandi starf, við höfum unnið náið með samgöngustofu, Vegagerðinni, borgaryfirvöldum og lögreglu í allskonar verkefnum ásamt því að vinna í allskyns herferðum
Stjórnin vinnur með hagsmuni mótorhjólafólks í fyrirrúmi og erum í góðri samvinnu við FEMA
Svo eru skemmtilegu verkefnin eins og skipulagning 1.maí keyrslan, vorfundurinn ljúfi, fjölskyldugrill og ekki má gleyma öllum opnu húsunum þar sem við fáum að hitta allt skemmtilega fólkið. Þar hafa ýmsir stigið á stokk, kynnt sig og sína, höfum fengið allskyns fræðsluefni, auk þess að fá beint samtal við hinar og þessar stofnanir
Við gerum kröfu um að fólk sem gefur sig fram til starfa fyrir Snigla, hafi tíma, áhuga og getu til að vinna að hagsmunum bifhjólamanna.
Þetta allt gerist ekki að sjálfu sér!
Við óskum eftir fersku fólki í stjórn með okkur og nú má unga fólkið endilega leggja okkur lið 😎
Samfélagsmiðlar eru orðnir jafnsjálfssagðir og tíkallasímarnir voru hér áður og okkur vantar td einhvern hugmyndaríka/nn aðila í það
Endilega heyrðu í okkur, komdu í framboð, sumarið er handan við hornið og nóg að gera!
Samtakamáttur mótorhjólafólks á Íslandi fer núna vaxandi og við þökkum stuðninginn við starfið á liðnu ári. Það er með greiðandi félögum okkar sem hægt er að halda úti öflugri starfssemi og hagsmunagæslu. Við viljum því nota tækifærið og minna alla á að greiða greiðsluseðlana í heimabankanum, fyrir aðalfundinn, og þökkum fyrir stuðninginn um leið og við bíðum full eftirvæntingar eftir hjólasumrinu 2026.
Kær kveðja stjórn Bifhjólasamataka, lýðveldisins Sniglar.



