Aðalfundur 2026

Aðalfundur Bifhjólasamtaka lýðveldisins, Snigla, var haldinn laugardaginn 7. mars 2026 og fór hann vel fram með ágætri þátttöku félagsmanna. Á fundinum var farið yfir starfsemi félagsins á liðnu starfsári og helstu verkefni framundan.

Samkvæmt dagskrá fundarins var skýrsla stjórnar kynnt og farið yfir helstu áherslur og verkefni ársins. Einnig var ársreikningur félagsins lagður fram og yfirfarinn, ásamt rekstraráætlun komandi árs. Þá var flutt áhugaverð kynning um starfsemi FEMA, sem vakti góðar umræður meðal félagsfólks. Að lokum voru tekin fyrir önnur mál. Allar tillögur og mál sem lögð voru fyrir fundinn hlutu samþykki.

Á fundinum urðu breytingar á stjórn félagsins. Jokka G. Birnudóttir, varaformaður, Sigurjón Hansson, ritari, Guðlaugur Jónsson, meðstjórnandi, og Ragna Berg Gunnarsdóttir, í varastjórn, létu af störfum eftir mikilvægt framlag til félagsins á undanförnum árum. Félagið vill færa þeim innilegar þakkir fyrir þeirra störf, tíma og eldmóð í þágu félagsins og félagsfólks.

Til setu í stjórn voru kjörin Pétur Gunnarsson í aðalstjórn, Logi Már Einarsson í aðalstjórn, Gunnar Gunnarsson í varastjórn og Anna Guðný Egilsdóttir í varastjórn. Við bjóðum þau hjartanlega velkomin til starfa og hlökkum til samstarfsins framundan.

Framundan eru ýmis verkefni sem stjórn félagsins mun vinna að á næstu mánuðum.

Þar á meðan stendur til að hefja vinnu við að finna nýtt húsnæði fyrir Snigilana, sem er mikilvægt verkefni fyrir starfsemi félagsins til framtíðar.

Auk þess er framundan hefðbundið félagsstarf, þar á meðal undirbúningur vorfagnaðar, 1. maí keyrslan, opin hús, grill og fleira.

Lóan er komin og því styttist í að við fáum að viðra fákana okkar.

Farið varlega og komið heil heim.

Stjórn Snigla

Shopping Cart
Scroll to Top