Við leitum að öflugu fólki í stjórn
Nú er brýn þörf á að styrkja stjórn félagsins og við leitum að áhugasömum einstaklingum til að taka þátt í starfinu.
Laus eru:
2 sæti í aðalstjórn (kjörtímabil 2 ár)
2 sæti í varastjórn (kjörtímabil 1 ár)
Stjórnarseta er gefandi og skemmtilegt verkefni þar sem þú færð tækifæri til að hafa raunveruleg áhrif. Við vinnum saman að því að efla starf félagsins, bæta öryggi bifhjólafólks og standa vörð um réttindi þess.
Í stjórn starfar samhentur hópur með góðan starfsanda og metnað fyrir málefninu. Starfið felur í sér þátttöku í fjölbreyttum verkefnum og viðburðum – og ekki síður góðan félagsskap.
Margar hendur vinna létt verk og framlag hvers og eins skiptir máli. Ef þú hefur áhuga á að leggja þitt af mörkum og taka þátt í öflugu starfi, hvetjum við þig til að gefa kost á þér.
Framboð sendast á stjorn@sniglar.is
Við hlökkum til að heyra frá þér.
Tilkynning um breytingu í stjórn
Vegna persónulegra aðstæðna hefur Guðlaugur Jónsson ákveðið að stíga til hliðar frá aðalstjórn félagsins, en hann átti eitt ár eftir af kjörtímabili sínu.
Steinmar Gunnarsson tekur sæti í aðalstjórn úr varastjórn í hans stað.
Fyrir hönd stjórnar.



